|
|
31.10.2007 23:51:33 / solareynis
Í gær kl:16:10 skaust gullfallegur 14,5 marka og 51 cm langur drengur í heiminn. Fæðingin sem átti sér stað heima, undir handleiðslu Áslaugar heimafæðingarljósmóður, gekk vel og fékk sá stutti þann heiður og að koma í heiminn í hjónarúminu heima hjá sér. Okkur heilast mjög vel og gætum ekki verið hamingjusamari. Litli er voða vær og góður og auðvita langfallegastur Mátti bara til með að láta ykkur vita
»
21.09.2007 11:15:42 / solareynis
»
18.09.2007 09:36:58 / solareynis
Mig langar að vekja athygli ykkar á ABC barnahjálp en það er hjálparstarf sem veitir yfirgefnum og umkomulausum börnum varanlega hjálp í formi menntunar og heimila þar sem þörf er. Öll framlög sem fara til ABC renna óskipt til barnana þar sem ABC barnahjálp er rekin af rekstrarframlögum og sjálfboðavinnu. ABC barnahjálp hefur nú tekið inn í skólana sem þeir reka og heimili mikinn fjölda barna af biðlista sem voru í mikilli neyð. Nú er staðan sú að okkur vantar stuðningsaðila fyrir hátt á annað þúsund barna. Ég trúi ekki öðrum en flestir geti misst 2000-4000 kr á mánuði. Þú þarft ekki annað en að sleppa því að fara út að borða og einu sinni í bíó á mánuði. Þessi peningar gefa börnum svo mikið, menntun, læknishjálp og mat. Svo er líka rosalega gaman að eiga styrktarbarn, þú færð bréf frá barninu og fréttir af því reglulega og getur í sumu tilfellum meira að segja skrifað barninu bréf á móti. Ég hvet alla til að kynna sér þetta og taka að sér allavega eitt barn  " Vilt þú styðja barn í neyð? Ýttu þá á http://www.abc.is/ABChjalparstarf/Stydjabarn/
»
31.08.2007 13:25:14 / solareynis
Við Kaju situm hérna upp á Bókhlöðunni að vinna í BA-verkefninu okkar. Sem er nú ekki frásögufærandi nema bara hvað að þegar við komum úr hádegismat sitja tveir karlmenn, annar svona þrítugur og hinn svona fimmtugur við borð sem er út á miðju gólfi á Bókhlöðunni og því fyrir allra augum og lesa stafla af Bleikt og Blátt blöðum og B&B. Hversu óviðeigandi er það???!!! Nei, vildi bara deila þessu með ykkur....  Bæ í bili, Sólin sem er með ógeðishroll niður eftir öllu bakinu!!!!
»
26.08.2007 23:13:05 / solareynis
»
03.08.2007 11:27:17 / solareynis
Jæja, komin tími á smá fréttir! Ég er búin að vera svolítið
slöpp undanfarna daga og því hef ég ógrynni af tíma til að drepa.
Er bara mest búin að vera heima að taka því rólega. Ég ákvað að
nýta tíman og gera síðu handa Mola litla þar sem ég skrifa
óléttutengdar fréttir Síðan er lokuð en þau ykkar sem þekkja
okkur er velkomið að fá aðgang 
Síðan er:
molilitli.barnaland.is
»
17.07.2007 12:25:04 / solareynis
Vegna fjölda áskorana ákvað ég að henta inn nokkrum línum Ég
hugsa að lífið hérna í Hafnarfirði gæti ekki verið mikið betra
þessa dagana. Moli litli spriklar og spriklar en er samt yfirleitt
voða góður við mömmu sína, nema þegar hann liggur (já, liggur) á
pissublöðrunni minni þá tekur því varla fyrir mig að fara út af
klósettinu Annars gengur meðgangan mjög vel, eina sem ég gæti
kvartað yfir er þreyta í fótunum og bakinu.
BA ritgerðin gengur vel, SPSS innslætti dauðans lokið og við
byrjaðar að þáttagreina og skoða gögnin. Svo fer sumarprófið að
nálgast, eiginlega alltof hratt. Prófið er 20 ágúst. Daginn eftir
brúðkaupsafmælið okkar, frekar svekjandi en við gerum bara gott úr
því og ætlum okkur bara að halda upp á það eftir prófið 
Annars var ég að ranka við mér um daginn að sumarið er hálfnað
(meira að segja rúmlega það). Ótrúlegt hvað þetta líður hratt. Þó
held ég að við höfum aldrei fengið jafn mikið sumar og þetta sumari
hefur verið hér á þessu fróni. Svo maður ætti nú ekki að kvarta.
Jæja nóg í bili.
Sólin og Moli litli 
»
21.06.2007 11:18:12 / solareynis
Við Hreiðar fórum í sónar á mánudaginn, ég ætlaði nú að blogg
strax um það en það er bara búið að vera svo mikið að gera að það
gafst ekki tími til þess. En betra en seint en aldrei svo ég læt
það flakka núna Sónarinn var algjört æði, krílið var reyndar
mjög rólegt (ætli það komi ekki frá mömmunni eða kannski
móðursysturinni???) en við kvörtum náttla alls ekki yfir því. Allt
kom vel út, allir útlimir og líffæri eins og það á að vera. Svo var
það að sjálfsögðu rúsínan í pylsuendanum, umslag sem við fengum með
okkur heim með kyninu á barninu Við vorum svo búin að ákveða að
fara út að borða um kvöldið og opna umslagið Sem við og gerðum
og vitiði hvað við eigum von á litlum st****ling Jey!!! Erum að
sjálfsögðu þvílíkt ánægð með það.
Til svo að toppa þetta þá fann ég fyrstu hreyfingarnar á
þriðjudaginn, það var ótrúlegt. Get eiginlega ekki lýst þessu en er
alveg sannfærð um að þetta hafi verið spörk því ég fann nákvæmlega
eins í gær. Þetta er þvílík upplifun, enda svíf ég bara á b**** ský
þessa dagana 
Jæja svona fyrir þá sem hafa ekki húmor fyrir st*****ling þá
megi þið slá á þráði og múta mér eða Hreiðari til þess að
segja ykkur hernaðarleyndarmálið 
Kv. Sólin og spriklarinn hennar
»
17.06.2007 22:59:30 / solareynis
Gleðilegan þjóðhátíðardag Merkisdagur í dag enda á "litli"
brósi afmæli, orðin 14 ára, valdi sér aldeilis flott
afmælisdag Í tilefni þess að lýðveldi Íslands og Aron
Örn eiga afmæli fórum við stórfjölskyldan niður í bæ og svo enduðum
við Elín, Aron og Hreiðar á Rútstúninu að hlusta á mjög
framúrskarandi og málefnalega tónlistamenn með bleika þvottahanska
svo einhvað sé nefnt 
Af öðrum málum er það að frétta að BA verkefnið okkar Kaju tók
smá stakkaskiptum!! Gekk alls ekkert að finna rannsóknarverkefni
sem var áhugavert um einelti á vinnustað svo við ákváðum að reyna
plan B. En það er verkefni um viðhorf menntaskólanema til
jafnréttismála. Mjög spennandi bara svo nú er bara að gefa allt í
þetta og komast á skrið.
Af enn öðrum málum er það að frétta að við tilvonandi
foreldarnir erum að fara í sónar á morgun Sem er æði!!
Jæja, verið góð hvert við annað bæ í bili, Sólin
»
08.06.2007 12:32:29 / solareynis
»
31.05.2007 15:47:48 / solareynis
Jæja þá er við komin heim frá Spáni, ferðin heppnaðist mjög
vel enda ekki hægt þegar maður hefur skemmtilega
ferðafélaga Í stuttu máli þá uppskar ég þessar
tvær vikur:
- Smá lit Enda var ég orðin gegnsæ áður en ég fór út.
- Föt Fann ekki mikið af óléttubúðum en keypti kjóla og
mussur enda hentar tískan í dag óléttínum rosa vel.
- 14 moskító bit, Kaja fékk 2 og strákarnir ekki neitt!! Ég hlýt
bara að vera svo sæt??!!!
- Töluvert stærri bumbu. Vonum að það skrifist á barnið en ekki
allar pizzurnar og ísinn sem ég borðaði úti 
- og margt margt margt fleira en ég ætla nú ekki að eyða of
mörgum orðum í þetta að svo stöddu enda ekki nema rétt tæpur
sólahringur síðan við lendum en ég hlakka rosa til að hitta ykkur
öll 
Bæ í bili, Sólin
»
09.05.2007 19:16:20 / solareynis
Allir krakkarnir horfðu
með áhuga á örbylgjuofninn. Nema Binni, hann var inni.
Allir strákarnir dönsuðu við stelpurnar nema Ágúst, hann dansaði
við strákúst.
Allir krakkarnir voru auralausir nema Villi, hann var milli.
Allir strákarnir sváfu vel í tjaldinu fyrir utan Skúla, hann var
notaður sem súla
Jón var alltaf með bor..en aumingja Stebbi var alltaf með
hor...
Alllir strákarnir áttu kærustur nema Stjáni, hann fékk þær í
láni
Allir krakkarnir léku sér saman í körfubolta nema Gvendur hann
hafði engar hendur
Allir krakkarnir voru með hár nema Halla, hún var með skalla
Allir krakkarnir voru í lúdó nema Ingó, hann var í bingó
Allir krakkarnir voru klárir nema Auður, hún var sauður!
Allir krakkarnir voru úti að hlaupa nema Fjóla, hún var að
hjóla!
Allar stelpurnar voru mjóar nema Solla, hún var bolla!
Allar stelpurnar voru ljótar nema Lísa, hún var skvísa!
Allir krakkarnir voru nördar nema Valur, hann var svalur!
Og einn góður í endan
Allar stelpurnar voru sætar
nema Sóla, hún var ein stór bóla 
Jæja, bæ í bili, Sóla sem er
með prófljótu, bólu og paper-cut á fingrinum.
»
04.05.2007 20:15:46 / solareynis
Til þess að stytta mér stundir í lærdóminum tók ég upp I-podinn
og setti hann á "Shuffle" svona til tilbreytingar. Verð bara að
deila með nokkrum lögum sem pop-uðu upp!!
- The Chipmunk Song (Christmas with the Chipmunks)
- Stúlkan mín (Skítmórall aka Skímó) 
- We built this city (Jefferson Starship)
- This I promise you (Nsync)
- Help Me (Nick Carter)
- Ástfangin (Land & Synir)
Haha Veit ekki hvaðan þessi tónlist kemur því ég virkilega
ekki ekki með svona lélegan tónlistasmekk Best að kenna bara
Hreiðari um þetta 
Jæja, best að halda áfram að læra 
»
25.04.2007 12:48:49 / solareynis
»
23.04.2007 11:06:18 / solareynis

Hvort er barnið með nefið mitt eða Hreiðars? 
»
Síður: 1 2 3 ... 14
|
|