Mig langar að vekja athygli ykkar á ABC barnahjálp en það er hjálparstarf sem veitir yfirgefnum og umkomulausum börnum varanlega hjálp í formi menntunar og heimila þar sem þörf er. Öll framlög sem fara til ABC renna óskipt til barnana þar sem ABC barnahjálp er rekin af rekstrarframlögum og sjálfboðavinnu.
ABC barnahjálp hefur nú tekið inn í skólana sem þeir reka og heimili mikinn fjölda barna af biðlista sem voru í mikilli neyð. Nú er staðan sú að okkur vantar stuðningsaðila fyrir hátt á annað þúsund barna.
Ég trúi ekki öðrum en flestir geti misst 2000-4000 kr á mánuði. Þú þarft ekki annað en að sleppa því að fara út að borða og einu sinni í bíó á mánuði. Þessi peningar gefa börnum svo mikið, menntun, læknishjálp og mat.
Svo er líka rosalega gaman að eiga styrktarbarn, þú færð bréf frá barninu og fréttir af því reglulega og getur í sumu tilfellum meira að segja skrifað barninu bréf á móti.
Ég hvet alla til að kynna sér þetta og taka að sér allavega eitt barn 
"
Vilt þú styðja barn í neyð? Ýttu þá á
http://www.abc.is/ABChjalparstarf/Stydjabarn/